Romelu Lukaku viðurkennir að samband hans við Jose Mourinho hafi ekki alltaf verið dans á rósum.
Mourinho og Lukaku unnu saman í dágóðan tíma á Old Trafford áður en sá fyrrnefndi var rekinn í desember.
Lukaku reyndi svo sjálfur að komast burt frá United og samdi við Inter Milan í sumarglugganum.
,,Samband mitt og Mourinho var…. Hans samband við alla er öðruvísi en við áttum það til að vera ósammála,“ sagði Lukaku.
,,Við rifumst en ég elska hann sem mann og ég held að hann elski mig á móti en við vorum alltaf að rífast.“
,,Hann gæti gagnrýnt mig og þá gagnrýni ég hann á móti. Hann er þó minn maður, hann er minn maður.“