Liverpool hefur gefið það út að félagið vilji nú stækka heimavöll sinn enn meira, Anfield Road er sögufrægur völlur.
Anfield var stækkaður fyrir nokkrum árum og heppnaðist það afar vel, félagið vill nú stækka völlinn í 60 þúsund áhorfendur.
Völlurinn tekur í dag 54 þúsund í sæti en Liveprool vill nú stækka Anfield Road stúkuna sem er á móti Kop stúkunni.
Um er að ræða minnstu stúku vallarins en þar sitja 10 þúsund áhorfendur, en stuðningsmenn gestaliðsins sitja þar líka.