Hinn efnilegi Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði sitt fyrsta mark fyrir aðallið Norrkoping í kvöld.
Ísak er afar efnilegur leikmaður en hann kom til Norrkoping í fyrra frá ÍA hér heima.
Ísak er fæddur árið 2003 en þrátt fyrir mjög ungan aldur þá spilaði hann einn aðalliðsleik fyrir ÍA sumarið 2018.
Jóhannes Karl Guðjónsson er faðir Ísaks og er þjálfari ÍA. Hann er einnig fyrrum atvinnumaður.
Ísak var að skora mark fyrir Norrkoping sem leikur við lið Timra í sænska bikarnum. Staðan er 4-0.