Jurgen Klopp, stjóri Liverpool hafði ekki neinn áhuga á að selja Philippe Coutinho árið 2018.
Coutinho var seldur í janúar árið 2018 til Barcelona, kaupverðið var í kringum 140 milljónir punda.
Coutinho gekk ekki vel hjá Barcelona og var lánaður til FC Bayern á dögunum.
,,Coutinho er magnaður leikmaður, ég var með hann hjá Liverpool og vildi aldrei selja hann. ÉG var neyddur til þess,“ sagði Klopp.
,,Tilboðið var þannig að við gátum ekki hafnað því.“