Það eru engar líkur á því að Mauro Icardi sé á leið í frönsku úrvalsdeildina eins og talað hefur verið um.
Þetta segir Wanda Nara, eiginkona Icardi en hún er einnig umboðsmaður leikmannsins.
Icardi virðist ekki eiga framtíð fyrir sér hjá Inter Milan og hefur verið orðaður við Monaco þar sem nóg er til af peningum.
Nara harðneitar því þó að Icardi sé á leið þangað og er enn möguleiki á að hann semji við Juventus.
,,Hann er ekki á leiðinni til Monaco,“ sagði Nara í samtali við TyC Sports í gær.