Topplið Breiðabliks og Vals áttu bæði leiki í Pepsi Max-deild kvenna í kvöld og voru verkefnin erfið.
Breiðablik heimsótti KR á Meistaravelli og lenti undir í fyrri hálfleik er Guðmunda Brynja Óladóttir kom heimastúlkum yfir.
Á 68. mínútu þá jafnaði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir metin fyrir Blika og tryggði Berglind Björg Þorvaldsdóttir liðinu svo 2-1 sigur.
Valsstúlkur fóru á Selfoss og fengu einnig þrjú stig. Hlín Eiríksdóttir gerði eina mark leiksins.
Valur er með 40 stig á toppi deildarinnar eftir 14 umferðir en Breiðablik er sæti neðar með 3 stig.
KR 1-2 Breiðablik
1-0 Guðmunda Brynja Óladóttir
1-1 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
1-2 Berglind Björg Þorvaldsdóttir
Selfoss 0-1 Valur
0-1 Hlín Eiríksdóttir