Chelsea á Englandi er að losa sig við bakvörðinn Davide Zappacosta en frá þessu er greint í kvöld.
Zappacosta er 27 ára gamall bakvörður en hann fer í læknisskoðun hjá Roma í dag.
Ítalinn hefur ekkert spilað með Chelsea á tímabilinu og er ekki inni í myndinni hjá Frank Lampard.
Roma mun fá leikmanninn lánaðan út tímabilið og getur félagið svo keypt hann endanlega næsta sumar.
Zappacosta hefur aldrei staðist væntingar á Stamford Bridge og vill sjálfur komast heim til Ítalíu.