Sóknarmaðurinn Mario Balotelli hefur skrifað undir samning við lið Brescia á Ítalíu.
Þetta var staðfest í kvöld en Balotelli var nýlega orðaður við Brescia sem leikur í efstu deild.
Talið var að Balotelli myndi semja við Flamengo í Brasilíu en ekkert varð úr þeim skiptum að lokum.
Balotelli er 29 ára gamall en hann hefur undanfarið þrjú ár leikið í Frakklandi með Nice og Marseille.
Hann gerði garðinn frægan með Manchester City á Englandi og spilaði einnig fyrir Liverpool, Inter Milan og AC Milan.