Chelsea 1-1 Leicester
1-0 Mason Mount(8′)
1-1 Wilfried Ndidi(66′)
Chelsea mistókst að vinna sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni undir stjórn Frank Lampard í dag.
Chelsea tapaði fyrsta leik sínum 4-0 gegn Manchester United og þurfti að hefna fyrir það tap í dag.
Chelsea komst yfir snemma leiks en Mason Mount skoraði þá sitt fyrsta mark fyrir aðalliðið.
Staðan var 1-0 í hálfleik en í þeim síðari þá jöfnuðu gestirnir metin er Wilfried Ndidi skallaði knöttinn í netið eftir hornspyrnu.
Bæði lið fengu færi til að skora sigurmark leiksins en inn vildi boltinn ekki og lokastaðan á Stamford Bridge, 1-1.