Hassan Kajoke er ekki nafn sem margir kannast við en hann leikur í Malaví í Suðaustur-Afríku.
Kajoke spilar með liði Nyasa Big Bullets og átti góðan leik um helgina í 5-0 sigri á Karonga United.
Eftir sigurinn þá fékk Kajoke verðlaun fyrir að vera maður leiksins og voru verðlaunin… Ansi furðuleg.
Stuðningsmaður Nyasa fékk leyfi til að ganga inn á völlinn og afhenti sóknarmanninum lifandi hænu.
Kajoke tók að sjálfsögðu við þessum verðlaunum og stuttu seinna var skellt í eina hressandi mynd.
Sjón er sögu ríkari.