Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, neitar því að hann hafi verið drukkinn er liðið fagnaði með stuðningsmönnum eftir sigur í Meistaradeildinni.
Liverpool vann Meistaradeildina fyrr á þessu ári eftir úrslitaleik gegn Tottenham og var því boðið upp á rútuferð í borginni.
Þar fengu leikmenn að drekka áfengi eins og venjan er og leit Klopp út fyrir að vera drukkinn sem og nokkrir leikmenn.
Þjóðverjinn neitar þó að hann hafi verið fullur og segir að allir bjórarnir hafi endað hjá markverðinum Alisson Becker.
,,Fólk hélt að ég væri fullur í rútunni. Ég var það alls ekki, ég drakk bara tvo bjóra,“ sagði Klopp.
,,Ég leit bara út fyrir að vera drukkinn – allir bjórarnir sem ég hefði átt að drekka fóru til Alisson!„