Zlatan Ibrahimovic er langt frá því að vera hættur en hann er 37 ára gamall í dag.
Zlatan spilar með liði LA Galaxy í Bandaríkjunum og var frábær í leik gegn Los Angeles FC í nótt.
Carlos Vela kom Los Angeles yfir í leiknum í nótt áður en Zlatan jafnaði, að hætti Zlatan.
Svíinn skoraði stórkostlegt jöfnunarmark fyrir Galaxy en hann fór illa með varnarmann gestanna og þrumaði knettinum svo í netið.
Markið má sjá hér.
ZLATAN IS A MAGICIAN ? #SCtop10 pic.twitter.com/T54p7vOjCY
— SportsCenter (@SportsCenter) 20 July 2019