Gengið hefur verið frá sölu á Hákoni Arnari Haraldssyni frá Knattspyrnufélagi ÍA til FC
Kaupmannahafnar í Danmörku.
Hákon Arnar er 16 ára og hefur spilað með yngri flokkum ÍA. Hann á að baki átta leiki með
U17 þar sem hann hefur gert eitt mark og þrjá leiki með U16 þar sem hann hefur skorað þrjú
mörk.
Þess má geta að Hákon Arnar er sonur Haraldar Ingólfssonar og Jónínu Víglundsdóttur, en þau eru bæði fyrrverandi leikmenn félagsins og margfaldir Íslands- og bikarmeistarar.