Aaron Wan-Bissaka, bakvörður Crystal Palace hefur tjáð félaginu að hann vilji fara til Manchester United.
Wan-Bissaka vill fara til Ole Gunnar Solskjær en Palace hafnaði fyrsta tilboði United.
United bauð 40 milljónir punda á dögunum en er að undirbúa næsta tilboð.
21 árs gamli bakvörðurinn, Wan-Bissaka vill fara og spila með stærra félagi. Hann er núna að undirbúa sig fyrir EM U21 árs.
Palace horfir til Max Aarons hjá Norwich, en United horfir til hans ef Wan-Bissaka kemur ekki.