Það vakti talsverða athygli þegar Birkir Már Sævarsson, var ekki í leikmannahóp landsliðsins gegn Albaníu á laugardag.
Birkir hefur átt stöðu hægri bakvarðar í mörg ár, hann hefur skilað sínu frábærlega. Birkir var ekki meiddur, hann var einfaldlega settur utan hóps.
Hjörtur Hermansson, tók stöðu hægri bakvarðar og skilaði sínu með miklum ágætum. Birkir er öðlingsdrengur, hann virðist taka þessu með ágætum. Hann hefur spilað 90 A-landsleiki.
Stebba Sigurðardóttir, eiginkona Birkis setti inn skemmtilega Twitter færslu um málið í dag.
,,Er ekki alveg eðlilegt að ég beri einhverskonar foreldratilfinningar til Hjartar Hermannssonar?,“ skrifar Stebba.
,,Gamli minn stígur út og þessi ungi, lofandi drengur stígur inn, kominn í tvistinn og hefur allt sem þarf. Óska honum góðs gengis í hægri bakvarðarstöðu landsliðsins.“
Ísland mætir Tyrklandi klukkan 18:45 í kvöld, líklegt er að Hjörtur haldi stöðu sinni.
Er ekki alveg eðlilegt að ég beri einhverskonar foreldratilfinningar til Hjartar Hermannssonar? Gamli minn stígur út og þessi ungi, lofandi drengur stígur inn, kominn í tvistinn og hefur allt sem þarf. Óska honum góðs gengis í hægri bakvarðarstöðu landsliðsins.
— Stebba Sigurðardótti (@StebbaSig) June 11, 2019