Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, sá sína menn tapa 2-1 gegn Stjörnunni í kvöld í hörkuleik í Garðabæ.
Staðan var 1-1 þar til á 90. mínútu leiksins er Guðmundur Steinn Hafsteinsson tryggði Stjörnunni sigur. Valur er því í fallsæti eftir sjö umferðir.
,,Þetta er hundfúlt og bara saga sumarsins hjá okkur, það er bara þannig,“ sagði Ólafur við Stöð 2 Sport.
,,Auðvitað var klúðrið undir lokið spælandi en fyrst og fremst voru þetta spælandi úrslit.“
,,Auðvitað er ekki gott að vera í fallsæti, þetta er ömurleg staða sem við erum í en við höldum áfram. Ef það er einhvern tímann gott að fá hvíld þá er það núna.„