Guðni Bergsson, formaður KSÍ er ósáttur með umfjöllun Fótbolta.net og hvernig þessi öflugi miðill fjallar um málefni Björgvin Stefánssonar, framherja KR í dag. Þar er rætt um rasísk ummæli Björgvin og hvaða niðurstaða aga og úrskurðarnefnd kemur með í hans máli.
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu málið í útvarpsþætti Fótbolta.net á laugardag, þá umræðu gagnrýnir Guðni. Mál Björgvins var rætt í samhengi við atvik sem upp kom í vetur. Frétt um umræðuna birtist svo í dag.
Þórarinn Ingi Valdimarsson, leikmaður Stjörnunnar fékk þá rautt spjald fyrir fordóma í garð Ingólfs Sigurðssonar, leikmanns Leiknis. Aga og úrskurðarnefnd KSÍ, gerði ekkert í því máli. Ástæðan var að skýrsla dómara gaf ekki tilefni til þess.
Björgvin lét sín rasísku ummæli falla í útsendingu á leik Hauka og Þróttar, þar með er enginn skýrsla dómara
„Það gerir það að verkum að aganefndin getur ekkert gert. Topparnir hjá KSÍ klikka, þeir sem eiga að bregðast við og eiga að vernda ímynd fótboltans,“ sagði Elvar Geir um málið í Fótbolta.net þættinum.
„Þeir koma sér í hræðilega stöðu,“ sagði Tómas Þór. „Þú getur ímyndað hvað þeir klúðruðu þessu með miklum stæl. ‘Reynum að gera ekkert í þessu og vonum að það geri enginn neitt af sér í sumar þannig að þetta gleymist’.“
„Þetta er drulla á skrifstofu KSÍ,“ sagði Elvar Geir þá og þau ummæli fara ekki vel í formann KSÍ.
,,“Drulla á skrifstofu KSÍ”. Fótbolti.net á lágu plani í sinni umfjöllun í dag. Mættu kynna sér betur málsmeðferðarreglur og sjálfstæði aganefndar áður en að þeir gera lítið úr starfsfólki KSÍ,“ skrifar Guðni á Twitter í dag.
Aga og úrskurðarnefnd KSÍ mun fjalla um mál Björgvins á morgun og búast má við úrskurði í mál hans þar.
“Drulla á skrifstofu KSÍ” https://t.co/BOTm5x9RvN á lágu plani í sinni umfjöllun í dag. Mættu kynna sér betur málsmeðferðarreglur og sjálfstæði aganefndar áður en að þeir gera lítið úr starfsfólki KSÍ. #fotboltinet
— Guðni Bergsson (@gudnibergs) May 27, 2019