Paul Gascoigne, fyrrum landsliðsmaður Englands, var ofurölvi á veitingastað á Englandi á dögunum.
Frá þessu greina enskir miðlar en Gascoigne hefur verið að glíma við áfengisvandamál í mörg ár.
Hann hefur oft komið sér í fréttirnar síðan skórnir fóru á hilluna og þá aðallega fyrir mjög neikvæða hluti.
Það var Harry Redknapp, fyrrum knattspyrnustjóri Tottenham, sem þurfti að sjá til þess að Gascoigne gæti staðið í lappirnar og komið sér heim.
Redknapp var staddur þar ásamt eiginkonu sinni en rakst á Gascoigne sem leit alls ekki vel út.
,,Harry lét eins og hetja. Hann reyndi strax að koma hlutunum í dag,“ var haft eftir vitni á staðnum.
,,Gazza var í virkilega slæmu ástandi. Hann sá ekki skýrt og var oft nálægt því að detta í gólfið.“
,,Þetta kom bara upp. Gazza var ekki þarna til að hitta Harry og hans eiginkonu. Þau sáu hann bara. Harry hafði miklar áhyggjur af Gazza.“
Gascoigne hefur margoft reynt að fara í meðferð vegna fíknar sinnar en hún virðist skila litlum árangri.