Leicester City er líklegasti áfangastaður Arjen Robben ef marka má veðbanka, mikið hefur verið veðjað á þessi skipti.
Robben fer frá Bayern í sumar en hans síðasti leikur verður gegn Leipzig í úrslitum þýsku bikarkeppninnar um helgina.
Leicester er líklegasti áfangastaðurinn en PSV hefur einig verið nefnt til sögunnar.
Robben var á sínum tíma einn besti kantmaður heims en hann er 35 ára gamall, hann var afar hættulegur.
Robben hefur hins vegar verið mikið meiddur síðustu ár, það hefur aðeins dregið af honum.