Oscar Ruiz, fyrrum knattspyrnudómari frá Kólumbíu er sakaður um að hafa beðið um kynlíf frá öðrum dómurum. Gegn því að fá kynlíf ætlaði Ruiz sem var fremsti dómari landsins að hjálpa minni spámönnum að klifra upp metorðastigann.
Ruiz er 49 ára gamall en hann dæmdi á Heimsmeistaramótinu árið 2002, 2006 og 2010.
Hann er hættur að dæma í dag en starfar á vegum FIFA og er eftirlitsmaður dómara.
Harold Perilla, Carlos Chavez og Julian Mejia sem allt eru dómarar segja sömu sögu, Ruiz vildi kynlíf til að hjálpa þeim að ná lengra.
,,Hann áreitti mig kynferðislega frá árinu 2007 og þangað til ég hætti að dæma,“ sagði Perilla um samskipti sín við Ruiz.
,,Hann bað mig um að stunda kynflíf með sér til að ná langt sem dómari, að ég vissi hvað ég þyrfti að gera.“
,,Það voru mörg skiptin sem hann áreitti mig, það erfiðasta var á undirbúnngstímabili þegar hann káfaði á pungnum mínum og rassi. Ég stoppaði hann og það kom mér í vandræði.“
Perilla heldur því fram að sumir dómarar hafi stundað kynlíf með Ruiz og þannig fengið betri verkefni.