Jón Rúnar Halldórsson er hættur sem formaður knattspyrnudeildar FH, þetta segir Hjörvar Hafliðason sérfræðingur.
433.is hefur haft sömu heimildir og hefur reynt að ná í Jón Rúnar í allan morgun til að staðfesta þessar fregnir án árangurs.
Jón Rúnar hefur átt stóran þátt í uppgangi FH og búið til umhverfi þar sem FH hefur orðið stórveldi í íslenskum fótbolta. Hann hefur lengi starfað fyrir félagið og lagt sitt að mörkum.
Jón Rúnar var gestur í hlaðvarpsþætti okkar, 90 mínútum fyrr í vetur. Þar ræddi hann um það vonda við starfið, lygasögur um að hann hafi farið illa með opinbert fé.
,,Það er alveg sama hversu harður þú ert, þetta er alltaf vont. Þó að þú sért búinn að velkjast í þessum sjó lengi. Þetta verður aldrei það sem þú sækir í,“ segir Jón Rúnar í 90 mínútum, hlaðvarpsþætti 433.is.
Hann segir verst fyrir fjölskyldu sína að hlusta á sögur um að hann sé að gera eitthvað misjafnt við opinbert fé.
,,Verst er þetta fyrir þá sem eru í kringum þig heima. Sem skilja alls ekki af hverju maður heldur áfram, í þessu. Í sjálfboðavinnu, maður ræður því sjálfur hvort maður sé í henni. Ef þetta er ofan í kaupið líka, þá er eðlilegt að maður spyrji sig hvort maður sé í bara hálfviti, er maður bara hálfviti? Vantar í mann eitthvað vit, til þess að sjá það er ekkert vit í því að standa í þessu. Maður er þakklátur fyrir það að hafa ekki meira langtíma minni en þetta, maður vaknar morguninn eftir og það er byrjað að byggja, allt er gleymt. Menn halda áfram með bros á vör.“
Jón Rúnar Halldórsson er hættur sem formaður knattspyrnudeildar FH samkvæmt heimildum Dr. Football.
Fer úr leiknum sem einn öflugasti formaðurinn í íslenskum íþróttum. FH hafði ekkert unnið fyrr en hann kom til sögunnar.Ræðum í Doc á morgun.
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) February 20, 2019