Paul Pogba hefur verið frábær fyrir lið Manchester United síðan Ole Gunnar Solskjær tók við liðinu.
Pogba er búinn að skila meiru í fimm leikjum undir Solskjær en hann gerði í 14 leikjum undir stjórn Jose Mourinho.
Yaya Toure, fyrrum leikmaður Manchester City, segir að það sé Solskjær að þakka hversu vel Pogba er að spila.
,,Ég held að Paul hafi nú meiri trú á sínum þjálfara. Stjórinn verður að koma honum í stöðu þar sem hann telur sig vera aðalmanninn,“ sagði Toure.
,,Þú þarft að skila þínu og þú þarft að ýta liðinu áfram. Hann hefur gæðin til þess, heimsmeistaramótið í Rússlandi er gott dæmi.“
,,Hann vill finna fyrir sambandi á milli sín og stjórans, hann vill finna fyrir trausti og ást.“
Hér má svo sjá tölfræðina.