Philippe Coutinho, leikmaður Barcelona, hefur sterklega verið orðaður við brottför undanfarna daga.
Coutinho er ekki fyrsti maður á blað á Nou Camp en hann hefur ekki þótt sína sínar bestu hliðar á tímabilinu.
Brassinn kom til Barcelona frá Liverpool í janúar en hann var einn allra mikilvægasti leikmaður enska liðsins.
Spænskir miðlar greina nú frá því að Coutinho sé á ‘botninum’ hjá Barcelona og að sjálfstraust hans sé í molum.
Draumur Coutinho var alltaf að spila fyrir Barcelona en útlit er fyrir að hann eigi ekki framtíð hjá félaginu.
Barcelona borgaði þó 142 milljónir punda fyrir leikmanninn og vill svipaða upphæð ef hann á að fara.