Lið Monaco í frönsku úrvalsdeildinni samdi við miðjumanninn Cesc Fabregas í dag.
Fabregas gengur í raðir Monaco frá Chelsea á Englandi þar sem hann spilaði í fjögur ár.
Fabregas fékk lítið að spila undir stjórn Maurizio Sarri og fær nú grænt ljós á að reyna fyrir sér annars staðar.
Samkvæmt fréttum kvöldsins er Monaco nálægt því að fá annan leikmann frá Chelsea en í þett skiptið á láni.
Michy Batshuayi er leikmaðurinn en hann mun yfirgefa lið Valencia á næstu dögum þar sem lítið hefur gengið upp.
Batshuayi mun þá líklega ekki fá mikið að spila hjá Chelsea og gæti freistað þess að fara annað á lán.