Dimitar Berbatov, fyrrum leikmaður Manchester United, vill sjá félagið ráða Ole Gunnar Solskjær endanlega í sumar.
Solskjær var ráðinn stjóri United út tímabilið en óvíst er hvað hann gerir í sumar.
Spilamennska United hefur verið flott undanfarið og hefur Berbatov mikla trú.
,,Ef United heldur áfram á þessari braut – það er engin ástæða fyrir því að þetta ætti að stoppa – þá mun hann klárlega fá starfið,“ sagði Berbatov.
,,Hann er að standa sig frábærlega. Svo lengi sem þeir spila svona þar til í lok tímabils þá ætti hann að fá starfið – sama hvort þeir endi í efstu fjórum eða ekki.“
,,Ef þeir gera það ekki þá er ég viss um að annað lið í úrvalsdeildinni láti hann fá starf.„