Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, segir að það sé ekkert að því ef leikmenn liðsins rífist aðeins eftir æfingar.
Jose Mourinho var í erfiðleikum með að hafa stjórn á leikmönnum United og missti klefann. Hann var rekinn í desember.
Solskjær segir að það sé gott ef leikmenn vilji ræða málin að leikslokum og mun ekki koma í veg fyrir smá rifrildi.
,,Ég hef nú þegar séð það að leikmennirnir ná vel saman. Andrúmsloftið er frábært sem er mikilvægt fyrir öll lið,“ sagði Solskjær.
,,Þið þurfið ekki að vera bestu vinir. Liðsandinn er frábær. Við lentum í nokkrum rifrildum [sem leikmenn] en það er eðlilegt og það er búist við því.“
,,Ef hver æfing endar með smá rifrildi þá stöðva ég það ekki því það þýðir að þeir séu sigurvegarar og vilja bæta sig.“