Íslenska karlalandsliðið fékk skell í Sviss í dag er strákarnir fóru þangað í heimsókn í Þjóðadeildinni.
Ísland þurfti að sætta sig við sitt stærsta tap í heil 17 ár en Sviss hafði betur örugglega, 6-0.
Þorgrímur Þráinsson, liðsstjóri Íslands, setti inn færslu á Facebook síðu sína eftir tapið í dag.
Þorgrímur hvetur þar fólk til að horfa fram á veginn og birti einig myndband af körfuboltahetjunni Michael Jordan sem er einn besti íþróttamaður sögunnar.
,,Næstum allir hafa orðið fyrir áfalli — í einkalífinu, vinnunni, einir og sér eða með öðrum, innan vallar eða utan. Og það er gott að syrgja tímabundið í samhengi við áfallið,” skrifar Þorgrímur á Facebook síðu sína.
,,Íslenska landsliðið í fótbolta fékk skell í kvöld og við erum í sárum. Við munum syrgja fram yfir miðnætti en mæta tvíefldir á æfingu í fyrramálið. Og til allrar hamingju er leikur næsta þriðjudag. Reyndar gegn frábærri knattspyrnuþjóð — Belgum á Laugardalsvelli en ég hef fulla trúa á strákunum okkar, eins og ég hef alltaf haft.”
,,Við erum í brekku en leiðin getur eingöngu legið upp á við. Ég geri orð Arons fyrirliða að mínum, eftir sorglegt tap í Finnlandi í fyrra: ,,Við erum í þessu saman. Við vinnum saman og við töpum saman.“