Sviss er komið yfir gegn Íslandi en liðin eigast við í Þjóðadeildinni. Leikið er í Bern í Sviss.
Leikurinn hefur farið nokkuð fjöruglega af stað en Sviss tók forystuna eftir aðeins 13 mínútur.
Það var vængmaðurinn Steven Zuber sem skoraði markið en hann leikur með Hoffenheim í Þýskalandi.
Zuber fékk nóg pláss inn í íslenska vítateignum og átti þrumuskot sem Hannes Þór Halldórsson réð ekki við.
Hér má sjá markið.
13′: Wonderful finish from Zuber.#SUIISL #NationsLeague pic.twitter.com/6RYbxPyBLT
— SwissFootball UK (@FootballSwiss) 8 September 2018