Emil Hallfreðsson miðjumaður íslenska landsliðsins getur ekki spilað gegn Sviss. Rúv segir rá.
Emil er að glíma við meiðsli en fór með liðinu til Sviss, hann gæti spilað gegn Belgíu á þriðjudag.
Um er að ræða leiki í nýrri Þjóðadeild en Emil hefur verið algjör lykilmaður í landsliðinu.
Hann er fjórði lykilmaðurinn sem er óleikfær í fyrsta leik Erik Hamren, fyrir var ljóst að Alfreð Finnbogason, Aron Einar Gunnarsson og Jóhann Berg Guðmundsson yrðu ekki með.
Það er því erfitt verkefni fyrir Hamren en Sviss er áttunda besta landslið í heimi.
Erik Hamren segir meiðslastöðu liðsins góða. Bara Emil Hallfreðsson ekki klár að spila á morgun.
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) September 7, 2018