Stuðningsmenn CSKA Moskvu elska Hörð Björgvin Magnússon varnarmann félagsins sem kom í sumar.
Hörður gekk í raðir CSKA frá Bristol á meðan Heimsmeistaramótið í Rússlandi fór fram.
Hann gat ekki spilað með liðinu um helgina er liðið mætti Spartak, grönnum sínum.
Þess í stað var Hörður mættur á meðal stuðningsmanna liðsins og var að stjórna þeim.
Hörður byrjaði stuðningsmannalag og öll stúkan tók undir með þessum öfluga varnarmanni.
Leiknum lauk með 1-1 jafntelfi en ARnór Sigurðsson kom inn sem varamaður í leiknum.
Myndband af Herði að stýra stuðningsmönnum er hér að neðan.
ЦСКА ? pic.twitter.com/n5GRfm4hCN
— фэй. ? (@fayscops) September 23, 2018