Sigríður Klingenberg birti myndband á Facebook síðu sína í dag þar sem hún auglýsir stuðningsmannakvöld hjá Álftanesi.
Sigga er harður stuðningsmaður Álftanes sem leikur í 4.deildinni en hún mætir reglulega á leiki liðsins.
Álftanes heldur stuðningsmannakvöld um helgina og ákvað Sigga að auglýsa það í dag og hvetur fólk til að kaupa miða.
Sigga ákvað einnig að fækka fötum í þessu myndbandi og er auglýsingin ansi skondin.
Hún vonast einnig til að Aron Einar Gunnarsson mæti í veisluna og segir ‘kannski kemur hann’ þó að það verði að teljast ólíklegt.
Hér má sjá myndbandið sem Sigga birti.