Íslenska karlalandsliðið fær gríðarlega erfitt verkefni í kvöld er liðið spilar við Belgíu í Þjóðadeildinni.
Ísland tapaði 6-0 gegn Sviss um helgina ytra og þarf að svara fyrir sig á Laugardalsvelli í kvöld.
Það vantar ekki stjörnurnar í lið Belga en leikmenn á borð við Eden Hazard, Romelu Lukaku, Vincent Kompany og Thibaut Courtois byrja leikinn.
Byrjunbarlið Belgíu gegn Íslandi:
Thibaut Courtois
Vincent Kompany
Toby Alderweireld
Jan Vertonghen
Axel Witsel
Yannick Carrasco
Thomas Meunier
Dries Mertens
Yuri Tielemans
Eden Hazard
Romelu Lukaku