Ryan Bennett varnarmaður Wolves hefur auglýst á samfélagsmiðlum eftir dekkjunum og felgunum undan bílnum sínum.
Bennett varð fyrir því óláni að þetta var tekið undan bílnum hans en margir hafa rætt málið.
Flestum þykir þetta afar illa gert og tala margir um að heigulshátt sé að ræða.
,,Hefur einhver fengið boð um felgur með fjórum Dunlop dekkjum? Látið mig vita,“ sagði Bennett.
Dekkin voru á BMW bíl sem má sjá hér að neðan.