Gylfi Þór Sigurðsson er staddur í verðskulduðu fríi þessa stundina en hann skellti sér til Bahamas með kærustu sinni.
Gylfi spilaði með íslenska landsliðinu á HM í Rússlandi en strákarnir duttu úr leik í riðlakeppninni.
Það styttist í það að nýtt tímabil á Englandi hefjist en Gylfi leikur eins og allir vita með Everton.
Það er því gott að sjá okkar mann hlaða batteríin fyrir komandi átök enda hefur mikið reynt á síðustu vikur.
Hér má sjá myndir af Gylfa á Bahamas ásamt kærustu sinni, Alexöndru Helgu.