Hörður Snævar Jónsson skrifar frá Rússlandi:
,,Það hefur komið mér á óvart hversu rólegir við erum búnir að vera,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson leikmaður íslenska landsliðsins fyrir æfingu liðsins í Rússlandi í dag.
Íslenska liðið er að æfa í þriðja sinn í dag en nú er farið að styttast í fyrsta leik á HM, liðið hefur leik á laugardaginn gegn Argentínu.
Meira:
Ítarlegt viðtal við Gylfa í Rússlandi – ,,Ég hélt að það yrði meiri spenna og æsingur í okkur“
Íslenska liðið fór á sitt fyrsta stórmót fyrir tveimur árum. Liðið gerði það gott á EM í Frakklandi. Hverju skilar sú reynsla?
,,Það var meiri spenna og firðingur í Frakklandi, það var allt fyrst. Við erum ekki að upplifa allt í fyrsta sinn, það vonandi hjálpar okkur. Við fórum mjög langt á adrenalíninu í síðasta móti, þegar við mætum á leikstaði að þá kemur þetta,“ sagði Gylfi við fjölmiðla í dag.
,,Ég held að reynslan í Frakklandi sé mjög góð, var það sérstaklega í undankeppninni. Sérstaklega í stórum leikjum þegar við þurfum að spila vel, reynslan af Frakklandi er gríðarlega dýrmæt.“