Real Madrid er komið yfir í Úkraínu en liðið spilar nú við Liverpool í úrslitum Meistaradeildarinnar.
Karim Benzema var að koma Real yfir snemma í síðari hálfleik en markið var í raun ótrúlegt.
Loris Karius gerði hörmuleg mistök í marki Liverpool en hann kastaði boltanum nánast í Benzema og þaðan fór hann í markið.
Það er erfitt að útskýra hvað Karius var að hugsa en sjón er sögu ríkari.
Markið má sjá hér.
Lmao Benzema with the goal and Karius with the foolishness ? #ChampionsLeague #ChampionsLeagueFinal
(No copyright intended) pic.twitter.com/xCFTiGadsC— Disputable.org (@Guervio) 26 May 2018