Það eru tveir Íslendingar í byrjunarliði CSKA Moskvu í kvöld er liðið mætir Real Madrid í Meistaradeildinni.
Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon byrja báðir er CSKA fær verðugt verkefni á Santiago Bernabeu. Liðið á enn möguleika á að komast í Evrópudeildina.
CSKA er með fjögur stig í riðli sínum, jafn mörg stig og Viktoria Plzen sem er þó með betri markatölu og spilar við Roma á heimavelli.
Hér má sjá byrjunarliðin.
Real Madrid: Courtois, Odriozola, Vallejo, Javi Sánchez, Marcelo, Fede Valverde, Marcos Llorente, Isco, Asensio, Benzema, Vinicius.
CSKA Moscow: Akinfeev, Fernandes, Magnusson, Becao, Nababkin, Shchennikov, Oblyakov, Bistrovic, Vlasic, Chalov, Sigurdsson