Ársmiðasala á leiki Íslands í undankeppni EM 2020 heldur áfram, en 750 miðum verður bætt við söluna. Hefst hún að nýju á morgun, fimmtudaginn 13. Janúar, klukkan 12:00 á tix.is.
Miðasalan verður opin til 8. febrúar, eða þangað til að uppselt verður.
Ekki verður bætt við fleiri miðum en þeim er fara í sölu á morgun.
Þúsund miðar fóru í sölu í gær en fimm heimaleikir fara fram á næsta ári, þeir miðar seldust upp, afar hratt.