Það fer fram stórleikur í Meistaradeild Evrópu í kvöld er lið Paris Saint-Germain fær Liverpool í heimsókn.
Bæði lið þurfa á sigri að halda í leiknum en PSG er í þriðja sæti riðilsins með fimm stig og Liverpool í því efsta með sex stig. Napoli er í öðru sætinu með sex stig líkt og þeir ensku.
Um er að ræða næst síðustu umferð riðlakeppninnar og er sigurliðið líklegt til að komast í 16-liða úrslit.
Hér má sjá byrjunarliðin í París.
PSG: Buffon, Kehrer, Silva, Kimpembe, Bernat, Marquinhos, Verratti, Di Maria, Neymar, Cavani, Mbappe
Liverpool: Alisson, Gomez, Lovren, Van Dijk, Robertson, Henderson, Milner, Wijnaldum, Salah, Mane, Firmino