Virgil van Dijk, varnarmaður Hollands, reyndist hetja liðsins í 2-2 jafntefli gegn Þýskalandi í gær.
Van Dijk skoraði jöfnunarmark Hollands í uppbótartíma og tryggði liðinu farseðilinn í undanúrslit Þjóðadeildarinnar.
Dómari leiksins, Ovidiu Hategan, var mjög sorgmæddur í leikslok og byrjaði að gráta á vellinum.
Þessi 38 ára gamli Rúmeni fékk hræðilegar fréttir af móður sinni fyrir leik en hún hafði skömmu áður fallið frá.
Van Dijk tók eftir hversu sár Hategan var og faðmaði hann eftir leik. Hann vonar að það hafi hjálpað honum lítillega.
,,Maðurinnn brotnaði niður og stóð þarna með tár í augunum því hann hafði nýlega misst móður sína,“ sagði Van Dijk.
,,Ég vona að hann finni styrk og hrósaði honum fyrir frammistöðuna. Þetta var lítið sem ég gerði en ég vona að þetta hjálpi.“