Ashley Cole, leikmaður LA Galaxy í Bandaríkjunum, hefur komið sér í fréttirnar fyrir umdeildan hlut.
Cole er 37 ára gamall í dag en hann hefur ófáum sinnum fengið neikvæðna umfjöllun á skrautlegum ferli.
Cole skellti sér í hádegismat með kærustu sinni Sharon Canu í gær fyrir æfingu hjá félagi sínu.
Þar náðist mynd af Cole taka tóbak í vörina en hann hefur áður verið myndaður með sígarettu í hönd.
Það er óvíst hvort að Cole sé búinn að skipta út sígarettunum fyrir munntóbak.
Jamie Vardy, landi Cole, viðurkenndi það fyrir tveimur árum að hann hafi verið duglegur að nota munntóbak fyrir EM 2016 í Frakklandi.
Það þykir ekki vera til fyrirmyndar að nota tóbak og fær Cole gagnrýni fyrir það að vera slæm fyrirmynd.