Íslenska landsliðið tapaði fyrir Belgum í kvöld en liðin áttust við í Þjóðadeildinni.
Michy Batshuayi var maðurinn sem sá um Ísland og skoraði bæði mörk heimamanna í 2-0 sigri.
Frammistaða Íslands var ekki sú versta í mótinu hingað til en það vantaði þó mikið upp á fram á við.
Nokkrir leikmenn voru alls ekki upp á sitt besta og hafði þjóðin nóg að segja yfir leiknum.
Hér má sjá nokkur ummæli sem voru sjáanleg á Twitter.
Af hverju fær Hörður Björgvin pening fyrir að spila fótbolta? Er nánast alltaf slakur.
Annars góður bara.
— Ágúst Bjarni (@AgustBj) 15 November 2018
11 manna meiðslalisti stútfullur af lykilmönnum. Töpum fyrir einu besta landsliði heims á útivelli.
Tveir ungir leikmenn spila sína fyrstu landsleiki og annar ungur að byrja fyrsta alvöru leikinn.
Þessi leikur var aldrei að fara að bjóða upp á einhvern dóm. En ýmislegt jákvætt.
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) 15 November 2018
Margt ágætt, @karibestmeister enn á ný besti maður liðsins. En djöfull er gott að þessi Þjóðadeild sé á enda, ógeðsleg keppni
— Hörður S Jónsson (@hoddi23) 15 November 2018
Geggjað að fá Aron Einar aftur, þvílíkur leiðtogi! Albert og Arnór augljóslega tilbúnir í stærri hlutverk. Báðir óhræddir við að halda boltanum og taka menn á. Nauðsynlegt að spila þeim áfram í næstu verkefnum.
— Óttar K. Bjarnason (@ottar09) 15 November 2018
Eiður knows. #Batshuayi
— Daníel Rúnarsson (@danielrunars) 15 November 2018
Jón Guðni minnir óneitanlega á Giorgio Chiellini. Sama númer og hárið í stíl #fotboltinet
— Haukur Skúlason (@haukurskulason) 15 November 2018
Blind side… again!! #BELICE
— OliK (@OKristjans) 15 November 2018
Ooog Hörður Björgvin með háa sendingu, sem ratar ekki á samherja….x150?
— Viktor Smári (@viktorsmari) 15 November 2018
Rúrik er að gera sig kláran. Erum líklega að horfa upp á 12. meiðslin.
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) 15 November 2018
Æfir Kolbeinn bara þegar landsliðið hittist…maðurinn er ekki í formi frekar en ég @Fotboltinet
— Skarphéðinn Ívarsson (@GolfvallarGabbi) 15 November 2018
Mun aldrei botna í uppstillingu á neðri röðinni á svona myndum. Alltaf eins og línan í heild sinni sé í óvæntri ristilspeglun. #fotboltinet pic.twitter.com/dmJVDN0RjI
— Lovísa (@LovisaFals) 15 November 2018
Það besta við Þjóðadeildina er að hún er búin ?. Alvaran tekur við í mars #fotboltinet
— Pétur Sæmundsen (@PeturSaem) 15 November 2018
Djöfull var þetta vel spilað. Djövull er gaman að sjá ða liðið getur spilað með 3 mannavörn. Við erum að tala um þa að við héngum vel og lengi í einu besta landsliði heims. Ekki gleyma því. Við stefnum á topp 10 ! #fotboltinet
— Hafsteinn Árnason (@h_arnason) 15 November 2018
Flottar 45 á móti toppliði. Barátta og þéttur varnarleikur. Heyrist út um allan völl þegar Aron stýrir mönnum. Vonandi sama framhald í seinni #fotboltinet
— Magnús Már Einarsson (@maggimar) 15 November 2018
Hefði viljað sjá Eggert byrja. Hann á allt of fáa landsleiki miðað við frammistöðu í landsleikjun #fotboltinet
— Daníel Geir Moritz (@DanelGeirMoritz) 15 November 2018
Svo mikil þoka á vellinum að menn þurfa að vera með hazard-ljósin kveikt. #BELISL #FyrirIsland #fotboltinet
— Guðmundur Karl (@dullari) 15 November 2018
Vil ekki kenna @HordurM34 fyrir að Eden Hazard sé með 6th sense #fotboltinet
— magnus bodvarsson (@zicknut) 15 November 2018
Er ekki @ronnimall að sýna okkur að hann sé okkar lang mikilvægasti leikmaður. Landsliðið finnur langmest fyrir fjarveru hans með fullri virðingu fyrir öllum frábæru landsliðsmönnum okkar #fotboltinet
— Heiðar Ólafsson (@Heidaro) 15 November 2018