Það fer fram stórleikur í ensku úrvalsdeildinni eftir um klukkutíma er grannaslagurinn í Manchester hefst.
Englandsmeistararnir í Manchester City fá þá granna sína í Manchester United á Etihad völlinn.
Byrjunarliði United var fyrr í dag lekið á netið og reyndist það lið rétt. Þeir Paul Pogba og Romelu Lukaku byrja ekki.
Pogba er ekki í hóp í dag en Lukaku fær pláss á varamannabekknum. Alexis Sanchez er einnig á bekknum.
Hér má sjá byrjunarliðin.
Manchester City: Ederson, Walker, Stones, Laporte, Mendy, Fernandinho, B. Silva, D. Silva, Sterling, Mahrez, Aguero
Manchester United: De Gea, Young, Lindelof, Smalling, Shaw, Matic, Herrera, Fellaini, Lingard, Rashford, Martial