Alisson Becker, markvörður Liverpool, fylgist vel með tveimur markvörðum sem hann reynir að líkjast sem mest.
Alisson var keyptur til Liverpool frá Roma í sumar og hefur þótt standa sig með prýði á Anfield.
Jan Oblak og Marc-Andre Ter Stegen eru í uppáhaldi hjá Alisson en þeir leika með Atletico Madrid og Barcelona.
,,Mér líkar við Jan Oblak, hann er einn af þeim sem ég fylgist mikið með og Marc-Andre Ter Stegen,“ sagði Alisson.
,,Þeir eru á meðal þeirra bestu. Það eru aðrir en þetta eru markmennirnir sem eru að sýna mest.“
,,Tæknilega eru þeir í hæsta gæðaflokki og halda alltaf einbeitingunni. Þeir eru að hækka samkeppnina hjá okkur.“
,,Það er mjög heilbrigð samkeppni áður en það kemur í ljós hver af okkur verður bestur í lok árs.“