Alexis Sanchez gat ekki tekið þátt í æfingu Manchester United í dag fyrir leikinn gegn Juventus.
Fréttamenn fá að horfa á fyrst fimmtán mínúturnar af æfingu fyrir leiki í Meistaradeildinni.
United æfði í morgun og Sanchez kom ekkert við sögu þar vegna meiðsla sem hrjá hann.
Sanchez lék síðustu mínúturnar í 2-2 jafntefli gegn Chelsea á laugardag en virðist hafa meiðst þar.
Antonio Valencia gat tekið þátt í æfingu liðsins í dag og gæti komið inn í byrjunarliðið á morgun.
Alexis Sanchez misses training ahead of Juventus clash but Antonio Valencia has returned @ESPNFC https://t.co/dAh8RgiTXR
— Rob Dawson (@RobDawsonESPN) October 22, 2018