Íslenska landsliðið spilar þessa stundina við Sviss í Þjóðadeildinni en leikið er á Laugardalsvelli.
Ísland tapaði stórt fyrir Sviss í síðasta mánuði ytra, 6-0 en er að spila leik kvöldsins mun betur.
Það gerðist þó lítið í fyrri hálfleik kvöldsins en staðan er markalaus þegar búið er að flauta til leikhlés.
Leikurinn hefur alls ekki verið frábær skemmtun en bæði lið hafa ekki verið að skapa sér færi.
Þjóðin fylgist þó að sjálfsögðu vel með gangi mála og má sjá það helsta af Twitter hér fyrir neðan.
Það er fátt jafn sorglegt ásjónu og undurfögur bylgja sem deyr í ríkramannastúkunni.
— Ingimar H. Finnsson (@ingimarh) 15 October 2018
#fotboltinet pic.twitter.com/3tD22Y9SC9
— Gunnar Már Magnússon (@gunni_mar) 15 October 2018
Shaqiri er mesti naggur sem ég hef séð
— Andri Marteinsson (@andrimarteins) 15 October 2018
Mexíkóska bylgjan á Laugardalsvelli árið 2018. Rífa sig í gang takk. Það ömurlegasta í þessum bransa.
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) 15 October 2018
Býð fólk velkomið á Rúnars Más vagninn. Hann stefnir í að vera cult hetja eins og Helgi Kolviðs #fotboltinet
— Daníel Geir Moritz (@DanelGeirMoritz) 15 October 2018
Frissi Fánakall að sulla í sig í vinnunni, classic Frissi. #ISLSUI #fyririsland #fotboltinet pic.twitter.com/2XtrlYp4ca
— Heppinn Norðmaður (@bergur86) 15 October 2018
Getur Shaqiri það á köldu og blautu mánudagskvöldi í Reykjavík?#Fotboltinet
— Árni Jóhannsson (@arnijo) 15 October 2018
Birkir Bjarnason lætur mig öskra á sjònvarpiđ meira en nokkur annar leikmađur #KSÍ #fyririsland #ISLSUI #Fotboltinet
— Tommi Sigurbjorns (@dontomasini) 15 October 2018
Hamren er hálf kuldalegur þarna á hliðarlínunni spurning að splæsa í KSÍ úlpu á karlinn. #fotboltinet #ISLSUI #fyririsland
— Einar Guðberg Jónsson (@einsijons) 15 October 2018
Ísland vs Grænland? #FotboltiNet pic.twitter.com/2QcgKAElL1
— Hilmar Björnsson (@HilmarBjs) 15 October 2018
Bara á Íslandi 🙂 #lífiðkrakkar #fotboltinet #fyrirísland #ksi #IceSui #IslSvi pic.twitter.com/1zbnmZYF1W
— Steingrímur Sævarr Ólafsson (@frettir) 15 October 2018
Rúnar er nettur. Hakkar í sig stjörnur andstæðinganna. Fýla þetta.
— Arnar Smárason (@smarason1) 15 October 2018
Dóttir mín er tvítug og það er frábær landsleikur á Laugardalsvelli. Ég sakna Íslands sérstaklega mikið í dag #fotboltinet
— Hallgrímur Indriða (@hallgrimuri) 15 October 2018
Ég er kannski smá seinn að setja inn spá en þessi leikur fer 1-1, Xhaka jafnar í seinni hálfleik eftir að Alfreð kemur Íslandi í forystu eftir stoðsendingu Rúnars! #fotboltinet
— Eyþór Oddsson (@eythore91) 15 October 2018