Ísland kastaði frá sér nánast unnum leik gegn heimsmeisturum Frakka í æfingaleik ytra í kvöld.
Íslenska liðið var miklu sterkari aðili stærstan hluta leiksins en fékk á sig klaufaleg mörk undir lokin.
Birkir Bjarnason kom íslenska liðinu yfir eftir hálftíma leik með frábæru marki. Alfreð Finnbogason vann boltann af harðfylgni og kom honum á Birki sem afgreiddi færið vel.
Íslenska liðið var loksins líkt því eins og við þekkjum það, það var svo eftir klukkutíma leik sem Kári Árnason kom Ísland í 0-2. Gylfi Þór Sigurðsson tók hornspynu sem Kár skallaði í slá og inn.
Frakkar löguðu stöðuna seint í leiknum þegar Hannes Þór varði skot Kylian Mbappe í Hólmar Örn og í netið.
Frakkar jöfnuðu svo leikinn úr vítaspyrnu á lokamínútu fyrri hálfleiks, Kolbeinn Sigþórsson handlék knöttinn og Kylian Mbappe skoraði af öryggi.
Hér að neðan má sjá það sem þjóðin hafði að segja um leikinn.
Ég vil Ólaf Inga sem fastan pundit, litli meistarinn sem maðurinn er!
— Jói Skúli (@joiskuli10) October 11, 2018
Svekktur eftir jafntefli á móti heimsmeisturunum!!! Gjafamörk en allt annar bragur á liðinu. Hrunkaflanum vonandi lokið.
— Guðmundur Hilmarsson (@GummiHilmars) October 11, 2018
Bjóst ekki við svona leik. Grátlega nálægt sigri og áttum bara að vinna þá. Mætum svona á mánudaginn!#fotboltinet
— Magnús Sigurbjörnsson (@sigurbjornsson) October 11, 2018
Glæsileg frammistaða fyrir utan síðustu mínúturnar. Hamrén búinn að skrúfa Ikea húsgögnin saman #fotboltinet
— Thorsteinn Gunnars (@thorsteinngu) October 11, 2018
Geggjuð frammistaða en samt fáránlega svekkjandi, sérstaklega því það hefði verið auðvelt að koma í veg fyrir mörkin. Klárlega hægt að byggja á þessu #Fotbolti
— Smári Jökull Jónsson (@smarijokull) October 11, 2018
Gylfi og Jói B fara út og botninn með
— Magnús Haukur (@Maggihodd) October 11, 2018
Nú, Birkir Már útaf og allt hrynur? Ég er ekki viss um að ég nái að skafa hökuna úr gólfinu.
— Arnar Sveinn (@arnarsveinn) October 11, 2018
Kallast að vera ungur heimskur og kúl #fotboltineg
— Magnús Haukur (@Maggihodd) October 11, 2018
Einu sinni unnum við Frakka 1-1 á Laugardalsvelli. Nú töpuðum við 2-2 fyrir þeim í Frakklandi. #fotbolti#fraisl
— Golli-Kjartan Þorbj. (@gollmundur) October 11, 2018
Kolli að sýna quality sem okkur hefur vantað þarna uppi. #fotbolti #fotboltinet
— Axel Sigurðsson (@Axel_Sig) October 11, 2018
Giroud hefur aldrei verið jafn mikið í vasanum á leikmanni og í dag. Vonandi kemur Kári með hann heim í sumar
— Einar Gudnason (@EinarGudna) October 11, 2018