Slúður í knattspyrnuheiminum á Íslandi blómstrar þessa dagana eftir að tímabilinu lauk. Mesta athygli hefur vakið hvernig Slúðurboltinn á Twitter hefur farið fram.
Slúðurboltinn er huldumaður sem virðist heyra ansi margar sögur í Pepsi deild karla.
Hann var fyrstur til að greina frá því að Björn Berg Bryde væri á leið í Stjörnuna, sem dæmi.
Slúðurboltinn hefur verið á eldi síðasta sólarhring og dælt út sögum sem heyrast.
Hér að neðan má sjá helstu færslur Slúðurboltans síðasta sólarhring.
Kaj Leo er samkvæmt sögusögnum að skoða sín mál. Þar eru Blikar og Víkingur einna helst sem koma til greina samkvæmt sögunum. #fotboltinet
— sludurboltinn (@sludurboltinn) October 11, 2018
Sögur um það að Sindri Snær vilji komast upp á land. Aðrar sögur segja að hann sé mjög sáttur í Eyjunni fögru. Við teljum hann halda sig þar. #fotboltinet
— sludurboltinn (@sludurboltinn) October 11, 2018
Funheitt slúður að detta inn í kvöld. Ægir Jarl virðist færast nær KR. #fotboltinet
— sludurboltinn (@sludurboltinn) October 10, 2018
Áhuginn á GPL virðist eitthvað vera að minnka meðal félaga í Pepsi. Nú þegar menn sjá að það er lítið í buddunni þá verður erfiðara að bjóða í slíka leikmenn. Sögur um það að hann, Finnur Orri, Guðmann og Jajalo séu meðal leikmann sem fá lið hafa efni á. #fotboltinet
— sludurboltinn (@sludurboltinn) October 10, 2018
Slúðrið á Greifanum fyrir norðan er að stuðningsmenn séu að reyna að safna saman aur til að fá Hauk Heiðar heim á Akureyri, okkar sögur nefndu líka KR en menn á fullu að vinna vinnuna sína á Brekkunni. Það yrði stórt fyrir KA-menn ef það gengur upp. #fotboltinet
— sludurboltinn (@sludurboltinn) October 10, 2018
Meira fyrir svefninn. Steinþor að framlengja við KA. #fotboltinet
— sludurboltinn (@sludurboltinn) October 10, 2018
Nöfn Magna Fannberg og Adda Grétars í umræðunni um nýja djobbið hjá KSÍ. Okkar skot er samt enn á Rúnar Kristins. Þó nokkrar hræringar í KSÍ, verið að klára A-landslið kvk og svo spurning um U21 hjá strákunum. #fotboltinet
— sludurboltinn (@sludurboltinn) October 11, 2018
Lítið að heyra úr Inkasso enda eðlilegt að menn bíði aðeins meðan rykið sest í Pepsi. Stærstu nöfnin sem Pepsi-lið virðast vera að skoða eru Viktor Jóns, Gummi Magg, Zamorano og svo hafa verið sögur í gangi um Sævar Atla, en hann búinn að framlengja við Leikni. #fotboltinet
— sludurboltinn (@sludurboltinn) October 11, 2018