Samkvæmt spænskum fjölmiðlum er Eden Hazard, leikmaður Chelsea, ekki efstur á óskalista Real Madrid.
Hazard hefur stanslaust verið orðaður við Real undanfarna mánuði og vildi komast þangað í sumar.
Chelsea bað Belgann hins vegar um að vera áfram og samþykkti hann það. Hann hefur verið besti leikmaður Englands á tímabilinu.
Nýjustu fréttir segja að Real horfi til Paris Saint-Germain í Frakklandi og til Tottenham í ensku úrvalsdeildinni.
Neymar er einn af þeim leikmönnum sem Real vill fá en hann er opinn fyrir því að snúa aftur til Spánar.
Einnig er miðjumaðurinn Christian Eriksen efstur á óskalistanum en hann hefur spilað vel með Tottenham.
Hazard er sjálfur að bíða eftir því hvort Real sýni sér áhuga annars framlengir hann samning sinn á Stamford Bridge.