Jack Wilshere, leikmaður Arsenal, segir að liðsfélagi sinn hjá félaginu, Marko Arnautovic sé einn sá besti sem hann hefur spilað með á ferlinum.
Arnautovic hefur staðið sig vel fyrir West Ham á tímabilinu og hefur skorað alls 15 mörk í 43 deildarleikjum.
Wilshere hefur spilað með mögnuðum leikmönnum hjá Arsenal en hann segir að Arnautovic sé á meðal þeirra bestu sem hann hafi leikið með.
,,Arnautovic er einn góður leikmaður. Ég hef spilað með frábærum framherjum og frábærum leikmönnum,“ sagði Wilshere.
,,Hann er þarna uppi með þeim. Varðandi gæðin þá er svo mikið sem spilar inn í fyrir hann.“
,,Viðhorfið hans er frábært og hann er með góðan karakter. Hann er einn af leiðtogum liðsins.“
,,Áður en ég fór til West Ham þá þekkti ég hann ekki en hann hefur verið frábær frá fyrsta degi.“